A Free Template from Joomlashack

A Free Template from Joomlashack

April 2012
S M T W T F S
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30 1 2 3 4 5
May 2012
S M T W T F S
29 30 1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31 1 2
June 2012
S M T W T F S
27 28 29 30 31 1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30

Minningasjóður Ásgeirs H. Einarssonar

vegna samúðarkorta vinsamlega hafa samband við
Garðar Hinriksson
Sími 568-7650 / 892-8333


Aðalfundur Heklu
Skrifað af: Administrator   
Miðvikudagur, 09. maí 2012 20:26

Aðalfundur hjá Kiwanisklúbbnum Heklu.

Aðalfundur Heklunnar var haldinn 8. Maí í Félagsheimili
Seltjarnarness. Það voru hefðbundin aðalfundar- og félagsmálastörf.


 
  
Axel Bender, sem hefur verið í Kiwanishreyfingunni í 45 ár
fékk heiðursskjal og barmmerki þessu til
staðfestingar. Axel hefur verið m.a. 5
sinnum forseti Heklunnar og gegnt    mörgum
trúnaðarstörfum fyrir klúbbinn og Kiwanishreyfinguna.

 

  Axel Axel er fæddur 3. ágúst 1938.

Einnig var minnst Einars Þóris Sigurðssonar sem andaðist 9. apríl
2012. Einar hafði verið í Kiwanishreyfingunni í 45 ár.
Hann var fæddur 18.desember 1923.
Einar gegndi mörgum trúnaðarstörfum fyrir Hekluna. 
Heklufélagar senda aðstandendum innilegar samúðarkveðju.

Kiwanisklúbburinn Hekla

Birgir Benediktsson ritari.

 
Kvöldvaka á Hrafnistu Reykjavík
Skrifað af: Administrator   
Sunnudagur, 01. apríl 2012 19:42

Fimmtudagskvöldið 29. mars s.l. voru Heklufélagar héldu Heklufélagar kvöldvöku fyrir
heimilisfólkið á Hrafnistu í Reykjavík. Þessi skemmtun átti 40 ára afmæli
og hafa Heklufélagar alla tíð séð um kvöldvökuna. Margt var um manninn enda í
vændum mjög vönduð dagskrá. Pétur Magnússon forstjóri Hrafnistu bauð fólk velkomið
og lýsti í fáum orðum væntanlegum breytingum á matsalnum og fleiru.
Síðan setti forseti Heklunnar Oddgeir Indriðason skemmtunina og bað formann
Hrafnistunefndar Björn Pálsson að vera skemmtanastjóra. Björn bauð fyrstan á svið
engan annan en Kristján Jóhannsson stórsöngvara og Guðbjörgu Sigurjónsdóttur
píanóleikara. Kristján söng nokkur íslens og ítölsk lög við mjög góðar undirtektir.
Að vanda var happadrætti og voru vinningar alls 25. Páskaegg, konfekt , hvítvín
og rauðvín.Nú var komið að skemmtikrafti kvöldsins og var það Jóhannes Kristjánsson
eftirherma. Jóhannes fór á kostum, hermdi eftir mönnum og sagði gamansögur og
brandara.Að lokum var stíginn dans og var það hljómsveit Hjördísar Geirsdóttur sem sá um
það. Með Hjördísi voru þeir Ólafur G. Karlsson, Árni Norðfjörð og Agnar
Einarsson.Að þessu sinni mættu 8 Heklufélagar og eiginkonur þeirra.
Við þökkum öllum stuðningsaðilum og skemmtikröfur fyrir veittan stuðning
án þeirra væri þetta ekki hægt.

Birgir Ben
ritari Heklu.

Síðast uppfært: Sunnudagur, 01. apríl 2012 20:16
 
Sameiginlegur fundur.
Skrifað af: Administrator   
Miðvikudagur, 28. mars 2012 21:15

Fundur númer 1443 hjá Heklu

Kiwanisklúbbarnir Hekla, Esja, Katla, Höfði og Jörfi héldu sameiginlegan fund fimmtudaginn 27. mars s.l. Fundurinn var nú undir stjórn Heklufélaga, en klúbbarnir skiptast á að vera með fundarstjórn. Forseti Heklu Oddgeir Indriðason stjórnaði fundi og bauð alla velkomna, 46 félaga , 7 gesti og fyrirlesara kvöldsins. Hann bað menn að kynna sig og gerði síðan matarhlé.
Fyrirlesari kvöldsins var Pétur Magnússon forstjóri Hrafnistu, Pétur sagði sögu Hrafnistuheimilanna og lýsti starfseminni. Heimilin eru nú þrjú talsins og er þetta samfélag sem telur um 2000 mans þ.e. starfsmenn og heimilisfólk.
Hrafnista er 55 ára um þessar mundir. Pétur þakkaði jafnframt Kiwanisklúbbnum Heklu fyrir stuðninginn síðustu 45 árin með m.a. flugeldasýningum, kvöldvökum þar sem fram hafa komið landsþekktir skemmtikraftar og síða sumarferðir með heimilisfólk.Pétur svaraði síðan nokkrum spurningum og var síðan þakkað fyrir
áhugaverðan og fróðlegan fyrirlestur.
Pétur er félagi í Kiwanisklúbbnum Mosfelli,
Guðlaugur Kristjánsson félagi í Eldey kom upp og kynnti „Ís-golfið“ .
Það er fyrirhugað að leika golf hringinn í kringum Ísland á 14 dögum og slá um 9990 högg. Undirbúningur er í gangi og þarf að tala við marga og fá samþykki fyrir mörgum hlutum áður er lagt verður af stað, en áætlað er að leggja af stað 17. júní kl.00:00. Hin almenni Kiwanisfélagi getur safnað áheitum þ.e. krónur á þau högg sem notuð verða. T.d. 10 kr. á högg gefa 10 x 9990 = 99.900,- Þetta er galin hugmynd en afverju ekki, þetta auglýsir Kiwanishreyfinguna og ekki veitir af. Nánar um Ís-golfið verður inn á www.isgolf.is Gunnlaugur svaraði nokkrum spurningum að lokum.
Önnur mál; Forsetar klúbbana komu og þökkuðu fyrir fróðlegan og góðan fund. Einnig komu fyrirspurnir um hvað Umdæmið ætli að gera í húsnæðismálum. Umdæmisstjóri var ekki til staðar til að svara en fyrrverandi umdæmisstjóri Óskar Guðjónsson var á staðnum og sagði að það væri verið að skoða málið.
Ekki fleira gert og þakkaði forseti Heklu fundarmönnum fyrir mætinguna og óskaði öllum góðrar heimferðar. Fundi lokið kl. 22:00

Birgir Benediktsson
ritari.


Síðast uppfært: Föstudagur, 06. apríl 2012 15:56
 
 
Joomla 1.5 Templates by Joomlashack